Nudd er mögulega ein skilvirkasta og einfaldasta leiðin til sjálfsumhyggju. Staðfest áhrif nudds eru margvísleg og það er öflug aðferð við að draga úr verkjum, minnka bólgur, hraða endurheimt og auka slökun. Því miður álíta margir enn nudd sem lúxus og leyfa sér sjaldan eða gefa sér sjaldan tíma til að mæta í nudd. Best er að hafa nudd reglulega í skipulagi daganna frekar en að bregðast við þegar eldurinn er kviknaður.
















