Viltu gera reglubundna hreyfingu að lífsstíl?
Viltu gera raunverulegar breytingar sem endast?
Viltu fá betra form, bætta líðan og leiðsögn sem virkar?
Þjálfun hjá mér er meira en æfingar. Þetta er þinn tími, fyrir þína heilsu. Ég flétta saman hreyfingu, fræðslu og sjálfseflingu svo þú skiljir líkama þinn, hegðun og huga betur.
Nokkrar leiðir eru í boði, hefðbundin einkaþjálfun þar sem ég er með þér á æfingum, fjarþjálfun með mismiklu utanumhaldi og einkaþjálfun þar sem 2-3 geta verið saman.
- Öll þjálfunin er einstaklingsmiðuð.
- Prógrammið sem nær yfirleitt yfir 4 vikur í senn, er í appi sem heitir Everfit þar sem skýr fyrirmæli eru um framkvæmd æfinga, myndbönd og myndir, bæði fyrir styrktar og þolþjálfun.
- Æfingarnar eru settar upp á aðgengilegan og sjónrænan hátt.
- Everfit tengist við helstu heilsuúr s.s. Apple og Garmin til að sækja viðbótarupplýsingar eins og HR, HRV o.fl.
- Sömuleiðis eru í appinu allar mælingar, hugleiðingar og lífstílsverkefni.
- Einnig er möguleiki á að opna fyrir matardagbók fyrir þær sem vilja.
- Ráðleggingar um næringu og fæðubótarefni, útreikningar á macros og matardagbók eru til viðbótar við hefðbundna þjálfun með föstu gjaldi.
- Öll samskipti við þjálfara fara fram í appinu þannig að allt sem tengist þjálfuninni er á sama stað.
- Ég vil helst sjá 3 mánaða skuldbindingu í upphafi og verð endurspegla það, þ.e. gefinn er 10-15% afsláttur ef greitt er fyrir lengri tímabil.
Hér er yfirlit yfir helstu leiðir og grunnverð á þeim sem miðast við mánuð í senn með 4 æfingum á viku.
Fyrir neðan myndina eru hnappar/tenglar á skráningarform ef þú vilt skoða mögueika á samstarfi og ég mun svara þér innan 2ja daga. Þú getur líka sent mér póst á tinnakh@icloud.com eða fundið mig á samfélagsmiðlum.

Ég er líka með hlaupaþjálfun fyrir konur sem eru byrjendur þar sem fókusinn er á þær sem eru að koma sér af stað með hlaup eða byrja aftur eftir langt hlé?
Hlaupaþjálfun fyrir konur sem eru byrjendur byggir á að skila 3 æfingum á viku og miðast við 4 vikur í senn. Þessi pakki er algjör lúxuspakki með miklum stuðningi og hvatningu. Í hlaupaþjálfun geta 2 til 3 verið saman. Markmiðið með hlaupaþjálfun er að koma hlaupunum í rútínu og komast yfir fyrstu vikurnar sem eru erfiðastar án þess að meiðast eða missa dampinn. Við förum yfir hlaupatungumálið; tempó, löngu hlaupin, pace, heart rate zones. Skoðum hlaupaöppin, snjallúrin og hlaupabúnaðinn. Við skoðum líka þær hindranir sem konur glíma oft við þegar kemur að hlaupum og förum yfir þær lausnir sem hægt er að nota. Eftir 4 vikur eru margir tilbúnir að halda áfram sjálfir en hægt er að bæta við vikum þangað til því markmiði er náð.
Ég hef stundað fjölbreytta hreyfingu alla ævi: styrktarþjálfun, hlaup, jóga, göngur og fleira. Samhliða hef ég sótt mér heildstæða þekkingu; bæði gegnum formlegt nám og sem hluta af óstöðvandi áhuga á heilsueflingu og hreysti. Ég blanda saman því sem virkar og því sem ég hef reynslu af – bæði sem iðkandi og kennari.
Ég þekki líka mótlætið: ofþyngd, verki, meiðsli, andlegt álag, tímaleysi, breytingaskeið og tímabil þar sem ekkert gengur upp. Þessi reynsla mótar nálgun mína og hefur leitt mig djúpt í seiglufræðin sem snúast um hvernig þrautseigja og styrkur í mótlæti eru byggð upp og notuð í raunverulegu lífi meðal annars hvað varðar hreyfingu og lífsstílsbreytingar.
Hugmyndafræðin sem ég geng út frá varðandi þjálfun, bæði mína eigin og annarra byggir fyrst og fremst á langtímahugsun. Hreyfing á að vera reglulegur hluti af skipulagi daganna og hún hefur tilgang.
Ég spyr spurninga eins og Hvað viltu verða gamall/t/gömul? Hvað viltu geta gert þegar þú ert kominn á síðasta áratug lífs þíns? Þessi hugmyndafræði sækir innblástur í fræði um seiglu, áhugahvöt og til langlífisfræðanna s.s. Outlive bókar Peter Attia
Ég er reglulega með fasta jógatíma en það fer eftir árstíma og aðstæðum þannig að best er að hafa samband ef jóga er það sem þú sækist eftir. Á YouTube eru nokkrir jógatímar sem hafa verið teknir upp, í Covid var fjarjóga og svo hef ég tekið upp tíma og sett inn þegar forföll verða. Þessir tímar eru fyrir alla sem vilja taka góðan tíma heima og úrvalið ætti að vera nægilegt til að mæta ólíkum þörfum.
Ef þú hefur spurningar og vilt skoða möguleika á samstarfi getur þú sent mér póst tinnakh@icloud.com eða fundið mig á Facebook eða Instagram. Hér fyrir neðan eru skráningarform í þjálfun.
Fyrsta skrefið er alltaf þitt.