Ég hef kennt jóga frá árinu 2012, lengst af sem hluti af Simply Yoga en síðasta árið á eigin vegum. Á þessum árum hefur jóga orðið svo miklu meira fyrir mér en hreyfing eða æfing á dýnu. Það er einfaldlega lífsstíll og hefur gefið mér ótrúlega mikið. Í dag sé ég hversu mikil áhrif jógaheimspekin og lífsspekin sem henni fylgir hefur haft á mig. Hún hefur að mörgu leyti verið eins konar beinagrind í lífinu; gefið mér ramma utan um viðhorf mín, nálgun og hvernig ég tekst á við ótal ólíka hluti.
Kennslan mín hefur þróast í takt við þetta. Asana, þriðja grein jógans, stöðurnar sem við flest tengjum fyrst við jóga, eru enn kjarninn í tímunum mínum. En í dag vil ég miðla meira af jógafræðunum og lífsspekinni. Ég tala því meira en áður um Yamas og Niyamas, öndun, meðvitund og skynjun, slökun og hugleiðslu og hvernig við getum tekið þessa þætti með okkur út úr jógatímanum og inn í daglegt líf.
Kannski er það einfaldlega eðlileg þróun eftir öll þessi ár. Jóga hefur gefið mér svo margt sem ég tengdi ekki endilega á þeim tíma að kæmi þaðan og mér finnst ég þurfa að gefa þetta áfram svo fleiri geti notað þessi verkfæri sem eru svo hagnýt.
Á haustönn 2026 er ég með tíma í Zumbasalnum í Íþróttahúsinu í Fellabæ, lokaða tíma í karlajóga í Austur og fyrirhugað YinYoga/YogaNidra námskeið í október.
Hér fyrir neðan er hægt að skrá sig í jóga í Zumbasalnum sem er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 20:10-21:10
Á YouTube eru nokkrir jógatímar sem hafa verið teknir upp, í Covid var fjarjóga og svo hef ég tekið upp tíma og sett inn þegar forföll verða. Þessir tímar eru fyrir alla sem vilja taka góðan tíma heima og úrvalið ætti að vera nægilegt til að mæta ólíkum þörfum.